Menntun
B.A. í sálfræði - Háskólinn á Akureyri
MSc. í sálfræði - Háskólinn í Reykjavík
Áherslur
Streita og kulnun
Kvíði
Áföll og áfallastreita
Lágt sjálfsmat
Langvinnir verkir og heilsufarsbreytingar
Um Torfa
Torfi Már Jónsson
Sálfræðingur og stofnandi Sálfræðinetsins
Torfi er sálfræðingur með reynslu af störfum innan, heilbrigðis- og velferðarkerfisins frá árinu 2012. Hann starfaði um árabil hjá félagsþjónustu Hafnarfjarðar og velferðarsviði Kópavogs, meðal annars sem deildarstjóri í búsetukjörnum fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir og tók þátt í innleiðingu hugmyndafræðinnar Þjónandi Leiðsögn.
Torfi útskrifaðist með B.A. gráðu í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2017 og MSc gráðu í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2022. Áherslur hans liggja meðal annars í heilsusálfræði, með reynslu úr starfsnámi og störfum á Reykjalundi, Landspítalanum og Geðheilsuteymi Suðurnesja. Samhliða einstaklingsviðtölum sinnir hann einnig námskeiðshaldi og fræðslu fyrir starfsendurhæfingar, símenntunarstöðvar, fyrirtæki og stofnanir.